Apple pie and a .45
Mama’s readin guns n ammo
Sippin lemonade
Baby’s in the backyard
Tossin hand grenades
Grandpa’s shootin dinner
Some possum and some squirrel
Last night they ended up shooting
Our neighbor’s baby girl
Everybody’s so upset
Every person in the town
But that can't bring a life back
After it’s shot down
Blúsbloggið
Tuesday, December 29, 2020
Blúsplötur ársins 2020
Sunday, December 6, 2020
Drottning, þrír kóngar og og handfylli af jólasveinum – tíu bestu jólablúsarnir
Við byrjum þessa jólaþeysireið á drottningu sjálfri – Bessie Smith ætlar að halda jólin með sínu nefi. Jólin færa manni gleði, bjór, vín og dans – og komi dansfélaginn ekki nógu vel fram við mann, er bara að sækja sér nýjan, nóg er til.
Í kjölfar drottningarinnar koma, einsog vera ber, þrír kóngar. Fyrstur til að stíga á svið er Albert – lénsherra Stevie Rays og Gibson V-beri. Ég er satt best að segja ekki alveg viss hvað jólin koma þessu lagi við – en þau eru þarna samt í viðlaginu. Sennilega er það bara árstíminn, en blúsinn er víst samur við sig hvort sem það er ágúst eða desember.
I've got to push on
I got to push on away from here
Oh, you treat me just like I'm a playtoy, darlin'
And Christmas only comes once a year
Næstur kónganna er Blues Boy BB King. Hann hefur sinnt jólunum vel, einsog áður segir, og margt af því er æði smekklaust – svo sem dúett hans með (hinni oft ágætu) Christinu Aguilera. En þetta gerir hann gríðarvel.
Þriðji og síðasti kóngurinn er auðvitað Freddie. Ég vissi ekki af þessu lag fyrren áðan en þetta er strax orðið uppáhalds jólalagið mitt. Úti heyrist í sleðabjöllum og englakórum, en Freddie heyrir ekkert frá ástinni sinni – og situr bara inni einn og grætur.
Frændi BB – deltablúsarinn Bukka White – á líka þetta æði fína lag. Kærastan hans setti engan pakka fyrir hann undir jólatréð og hann skilur bara ekkert hvers vegna.
Chuck Berry er hefðbundnari í sínum jólatextasmíðum – í staðinn fyrir að taka blústexta og strá svolitlum jólum yfir það, hefur hann tekið týpískan jólatexta og stráð svolitlum blúsi yfir það.
If I could only have an hour of this holiday with you
We could sit and rap together, spinning records old and new
Have a little cake and a bit o' coke now and do the things we used to do
Clarence Gatemouth Brown sýnir á sér nýja hlið og er skemmtilega djassaður í jólalagi um að jólin séu ekki bara fyrir mig og þig, heldur fyrir alla.
Orðaleikurinn með að „dresser drawer“ geti bæði þýtt kommóðuskúffa og kvenmannsnærföt er gamalt hokum-grín. Þegar kærastan hans Sonny Boy Williamsonar fer úr húsi og segist hafa skilið gjöfina hans eftir í kommóðunni tekur forvitnin af honum völdin og hann fer að gramsa – með kostulegum afleiðingum sem enda með lögregluafskiptum.
Butterbeans og Susie voru gríndúó í vaudeville hefðinni – og þykir alls ekki fínt, vel að merkja, en lagið er skemmtilegt og listasagan var einsog hún var (þótt ég hefði nú sennilega haft lengri fyrirvara á því að pósta svona ef þau hefðu verið hvít). Vaudeville-sýningarnar gengu mest út á skopstælingar og klisjur úr hversdagslífi fólks og þar naut „hjónarifrildið“ gríðarlegra vinsælda. Þetta er svoleiðis lag – jólahjónarifrildi í blúsdúr.
Loks er það annar dúett – hinir æðislegu Leroy Carr (á píano og söng) og Scrapper Blackwell (á gítar). Í grjótinu á jólum:
This food here Santa, it ain't fit to eat
This food here Santa, it ain't fit to eat
Won't you come and bring me a plate of turkey meat
In jail on Christmas Day again, ain't that a pain
Oh baby, baby, baby ain't that a pain
Thursday, October 8, 2020
Blúsinn og veiran: „You Better Close Your Public Schools“
Um þriðjungur mannkyns mun hafa fengið spænsku veikina á sínum tíma í fjórum bylgjum og á bilinu 17-50 milljónir manns féllu í valinn. Faraldurinn hófst árið 1918 og stóð til 1920, þegar fyrsta blúsbylgjan hófst fyrir alvöru með Crazy Blues með Mamie Smith. Í ljósi þess að blúsinn er í grunninn alþýðutónlist og sem slíkur topikal – þ.e. hann fjallar um það sem er í deiglunni, um örlög starfsmanna á plani og plantekru – þá vekur athygli að tiltölulega fá lög fjalla um þennan ofsalega flensufaraldur. Að vísu dóu þá nokkuð færri í Bandaríkjunum en víða annars staðar – á bilinu 500-850 þúsund manns (miðað við 200 þúsund af Covid þegar þetta er skrifað) eða 0,5-0,8% af heildarmannfjöldanum – en margir veiktust og einn af hverjum 200 er heldur ekki ekki-neitt.
Eðlilegasta útskýringin held ég að sé sú að fyrsta áratuginn eða svo – áratug blúsdrottninganna svonefndu – var blúsinn alls ekki alltaf harmrænn. Það var meiri áhersla á hedónisma og ákveðið siðleysi – og tónlistin var lækning við bláma sálarinnar, aðferð til þess að reka hina svörtu hunda á brott, frekar en einfaldur harmsöngur. Einsog Ida Cox söng: „Wild women don't worry / wild women don't get no blues“. Þegar að hinir þunglyndari gítaristar mæta á svæðið til að segja sínar sögur er flensan einfaldlega gleymd og grafin undir fargi nýrra harmleikja – Mississippi áin flæðir yfir bakka sína, ofbeldi Jim Crow tímabilsins og Ku Klux Klan er í algleymingi, kreppan er hafin og brauðstritið þrúgandi. Það voru aðrar sögur sem þurfti að segja.
Önnur útskýring er að blúsinn er gjarn á að fjalla um hið sértæka frekar en hið almenna. Þannig er nóg til af blúslögum um sjúkdóma – Blind Lemon syngur í Pneumonia Blues að hann sé kominn með lungnabólgu af því að standa úti og bíða eftir ástinni sinni sem aldrei kemur; Bukka White syngur í High Fever að hann fari til læknisins til að kvarta undan sótthita en læknirinn segir að hann sé bara ekki nógu duglegur að fá sér knús; Victoria Spivey er vinalaus með berkla í TB Blues; Memphis Minnie er nær dauða af lífi af heilahimnubólgu í Meningitis Blues – en giska fá um faraldra.
Þriðja útskýring er einfaldlega að gospeltónlistin – sem var gjarna stillt upp sem andstæðu blússins – átti sterkara tilkall til frásagna um veikindi og dauða. Þegar að blústónlistarfólk syngur um almennar flensur og veikindi, feigð og dauðalegu, er það yfirleitt að syngja gospel – með sínu nefi, en samt. Það vill síðan til að þessi togstreita milli blúss og gospels, drottins og syndarinnar, dauðaþrárinnar og lífsnautnarinnar markaði líf margra blústónlistarmanna og þess vegna eigum við lög einsog John the Revelator með Son House (sem predikaði jafnvel milli laga og fyrirvarð sig fyrir að vera annars að spila sína djöfullegu músík):
In the year of 19 and 18, God sent a mighty disease.It killed many a-thousand, on land and on the seas.Well, we done told you, our God's done warned you,Jesus coming soon.We done told you, our God's done warned you,Jesus coming soon.
Great disease was mighty and the people were sick everywhere.It was an epidemic, it floated through the air.Well, we done told you, our God's done warned you,Jesus coming soon.We done told you, our God's done warned you,Jesus coming soon.
The doctors they got troubled and they didn't know what to do.They gathered themselves together, they called it the Spanishin flu.Well, we done told you, our God's done warned you,Jesus coming soon.We done told you, our God's done warned you,Jesus coming soon.
Well, the nobles said to the people, "You better close your public schools.""Until the events of death has ending, you better close your churches too."We done told you, our God's done warned you,Jesus coming soon.
It was nineteen hundred and nineteen;Men and women were dying,With the stuff that the doctor called the flu.People were dying everywhere,Death was creepin' all through the air,And the groans of the rich sure was sad.
Það er eitt og annað áhugavert að gerast í þessum texta. Eitt af því sem skilur harm flensunnar frá öðrum harmi og dauða á þessari gullöld harmsins er að flensan gerir ekki mannamun – einsog Bjarni Ben benti á erum við öll í sama bátnum (samt ekki, ekki varðandi aðrar afleiðingar – og ég veit ekki hvernig það var þarna 1919 en kórónaveiran leggst harðar og verr á fátækt fólk og jaðrað, af ýmsum ástæðum). Þórðargleðin leynir sér ekki þegar Essie syngur um kvein hinna ríku – loksins mega helvítin þjást með okkur hinum.
Well it was God's almighty plan,He was judging this old land,North and south, east and west,It can be seen,He killed the rich, killed the poor,And he's gonna kill some more,If you don't turn away from the shame.
En í grunninn er auðvitað leiðinlegt að við séum að drepast svona fyrir tímann og eina leiðin til þess að komast hjá því er að við snúum baki við skammarlegum lífsháttum okkar. Hér bergmálar líka orðræða umhverfisverndarsinna og grænkera frá því í vor – að við getum sjálfum okkur um kennt að éta kjöt (kórónaveiran kemur úr kjötvinnslu) og með henni létti þunganum af móður jörð (við fljúgum minna, keyrum minna o.s.frv.). Allt slæmt sem kemur fyrir okkur er í grunninn afleiðing af gjörðum okkar – við erum sjálf hið vonda í heiminum.
Þegar ég kópípeistaði textann tók ég eftir að sá sem skrifaði hann upp hafði skrifað „it killed the rich“ o.s.frv. frekar en „he killed the rich“. Það fannst mér áhugaverð misheyrn. Því hjá Essie fer ekkert á mili mála að það er ekki flensan sem drepur okkur – það er Drottinn sem drepur okkur. Flensur don't kill people, God kill people, einsog segir í orðskviðunum.
Down in Memphis, Tennessee,The doctor said it soon would be,In a few days influenza would be controlled.Doctor sure man he got had,Sent the doctors all home to bed,And the nurses all broke out with the same.
Það er alveg sama hvað læknarnir rembast. Loforð um sóttvarnir og bóluefni eru til einskis. Dauðinn kemur og sækir hina feigu.
Influenza is the kind of disease,Makes you weak down to your knees,Carries a fever everybody surely dreads,Packs a pain in every bone,In a few days, you are gone.To that hole in the ground called your grave.
AUKAEFNI
Friday, September 18, 2020
50 ár frá dauða Jimi
Það er 18. september 2020 og því liðin slétt 50 ár frá því Jimi Hendrix dó, 27 ára gamall, einsog Robert Johnson, Janis Joplin og allir hinir. Hér eru tvö lög af því tilefni.
Friday, September 11, 2020
Gatewayplatan: Freakshow með Bulletboys
Björn Halldórsson rithöfundur spurði á dögunum um „gateway“-plötur twitter-fylgjenda sinna. Spurninguna orðaði hann svona:
Hver var "gateway" platan ykkar? Fyrsta platan sem lét ykkur taka harkalega beygju inn á ókannaðar slóðir á jaðrinum (hvað sem það nú er), þannig að þið áttuð aldrei afturkvæmt á beinu brautina?Auðvitað eru milljón leiðir til þess að svara þessari spurningu. Sá sem hlustar á tónlist fer eðli málsins samkvæmt upp og niður alls kyns rangala. Fyrsti tónlistarmaðurinn sem ég man eftir því að hafa vitað hvað hét og „haldið upp á“ var Phil Collins – og um svipað leyti Elton John. Svo komu Elvis og rokkplötusafnið hans pabba – Bill Hailey, Buddy Holly, Chuck Berry. Þá er ég svona 7-8 ára líklega. Níu, tíu og ellefu voru Michael Jackson árin (ég var kallaður Eiki Jackson í barnaskóla). Svo kom Iron Maiden sirka 1990. Unglingsárin hjá mér fóru í Maiden og yfir í annað þungarokk – mest Metallicu, AC/DC og Guns – þaðan í blúsrokk og hipparokk, þaðan í thrash og dauðarokk og úr dauðarokkinu beint í Robert Johnson, Wes Montgomery og Django, úr þeim í Sly Stone og svo George Clinton og fönk, svo í Rage, Public Enemy og Ice-ana T og Cube. Svo kom alltíeinu Waits og hertók allt í mörg ár. Svo Eminem – og með honum Dre og Snoop sem ég hafði lítið hlustað á. Árin þar á eftir – miður þrítugsaldurinn – var mjög skrítinn. Tók meðal annars rispu í „adult contemporary“ – John Cougar Mellencamp og svona. Blúsinn hefur svo smám saman orðið fyrirferðarmeiri á síðustu árum – og á hug minn allan þessi misserin.
Marq Torien í vinstra horninu niðri fór fyrir strákunum í Bulletboys (sem voru allir í sama skækjubúningnum). |
Sunday, September 6, 2020
Uncle Doghouse ásamt gestum á Bankiren í Västerås – og tvífari vikunnar!
Í gærkvöldi lék hljómsveitin Uncle Doghouse á knæpunni Bankiren í Västerås. Gestur var gítarleikarinn og söngvarinn Thomas Hultman og upphitun var í höndum ungs deltablúsleikara sem kallar sig Preachin' Lips. Í salnum var meðal annars hinn frægi Kjell Höglund – handhafi Cornelisverðlaunanna – það var klappað sérstaklega fyrir honum en hann var ekki þarna til að skemmta heldur til að láta skemmta sér. Gaman að segja frá því. Gestaþak var 45 manns vegna kórónaveirunnar, allir sátu við sitt borð, miðaverð var 100 SEK (1600 kall – sem er umtalsvert lægra en maður á að venjast), það var matur í boði og þjónað til borðs (ég fékk mér hamborgara, hann var ljúffengur). Hljómsveitin lék tvö sett í gær – hið fyrra var auglýst 17.00 en hið síðara 21.00. Þegar ég keypti miðana, sem ég gerði snemma vegna þess hve fáir voru í boði, var sagt að okkur væri hollast að mæta hálf-fimm til að geta pantað mat og svona. Það reyndist allt fullkominn óþarfi. Tónleikarnir byrjuðu ekki fyrren rúmlega 18.00 og þá vorum við búin að borða. Best hefði verið að mæta bara þá.
Bankiren er áhugaverður staður. „Sunkig“ er orðið sem ég notaði til að lýsa honum fyrir Nödju (eftir að ég fór til að kaupa miðana, sem maður þurfti að gera í eigin persónu, og helst í reiðufé). Sjabbí, heitir það sennilega á góðri íslensku, en ég meina það í bestu merkingu – staðurinn er líka gamalgróinn. Þetta er í einhverjum skilningi klassísk úthverfaknæpa – svona í áttina að Catalinu í Kópavogi. En hún stendur alveg í hjarta miðbæjarins þar sem er annars ekkert að finna nema hipsterakeðjur og gleraugnaverslanir og H&M og þvíumlíkt. Mér leið strax frekar vel þar inni þegar ég kom að kaupa miðana. Þá voru fáir gestir og flóamarkaður á sviðinu en það var fullt á tónleikunum. Gestir voru sennilega flestir milli fimmtugs og sextugs, góðglatt fólk, sumir svolítið rauðnefja, áreiðanlega fáir úr efri lögum samfélagsins. Ég hugsa að eini maðurinn þarna inni sem var yngri en við Nadja hafi verið Preachin Lips.
Uncle Doghouse með Thomas Hultman. |
Það hafa verið talsverðar mannabreytingar í bandinu og í þessu myndbandi er nýi söngvarinn kominn, en gamli gítarleikarinn – Ecke, sem mun hafa samið megnið af lögunum – enn í bandinu, sem og gamli bassaleikarinn.
Palli og Håkan. |
Monday, August 31, 2020
Hókus Pókusmaðurinn Peps Persson (og þrífarar vikunnar)
Ég var að róta í vínylkassanum í Musikshopen á dögunum og rakst þá á þennan titil. Blues På Svenska með þeim Peps Persson og Slim Notini. Ég hafði aldrei heyrt á þá minnst áður en þessi Peps virkaði svo ótrúlega kunnuglegur samt. Lögin á plötunni eru allt blúsklassíkerar þýddir á sænsku – konseptið ekki svo ólíkt plötunni Blús með KK – pródusentinn er enginn annar en blúsvökumaðurinn Sam Charters, sem bjó áratugum saman í Svíþjóð og var ekki bara sænskur ríkisborgari heldur þess utan einkavinur (og þýðandi) Tomasar Tranströmer. Hef ég nýverið uppgötvað. Platan kostaði bara hundrað sænskar svo ég kippti henni með mér (ásamt einni Best of Freddie King) og skellti mér svo á kaffihús til að vinna svolítið. Dagarnir mínir fara svolítið mikið í að vera á vergangi niðri í bæ að leita mér að eirð og vinnufrið.
Og þá sló það mig. Peps minnti mig svona mikið á annan íslenskan blúsmann – Tómas Ævar, sem ég þekki fyrst og fremst sem kærasta vinkonu minnar Fríðu Ísberg. Ég sendi auðvitað Fríðu skilaboð undir eins. Hún hló (eða skrifaði haha á spjall held ég eða sendi einhvern hláturkarl) og sagði að þetta væri kannski framtíðarTómas og þá baðst ég velvirðingar, Peps væri vissulega ellilegri en hennar ástkæri (ég komst að því reyndar síðar að Peps er yngri en Tómas þegar platan er gerð, ekki þrítugur – en að sönnu ellilegri samt, sennilega var lífið bara óskammfeilnara). Næst rak ég augun í að barítónsaxofónleikarinn á plötunni heitir Per Erik Isberg. Eftir að hafa látið Fríðu vita af þessu líka lagði ég frá mér plötuna og fór snarhendis aftur að skrifa ódauðlegan skáldskap, einsog ég fæ laun fyrir.
Það fyrsta sem ég gerði eftir vinnu – þegar ég var búinn að kaupa í matinn og tæma úr pokunum – var að setja Blues På Svenska á fóninn og uppgötva, mér til talsverðrar gleði, að Peps er ekki bara sænskur heldur skánskur. Það er einhvern veginn blúsaðra að vera skánskur en að vera til dæmis (og kannski sérílagi) stokkhólmskur. Ég gæti líka trúað á norrlenskan blús – þar er bæði harmurinn djúpur, náttúran grimm og fólkið gætt mikilli sál – en trúi því engu að síður að skánski hreimurinn gefi sig betur að blústónlist, allir þessir rænulitlu sérhljóðar og gruggugu samhljóðar. Stokkhólmsbúar eru líka of hreinlífir í sínum lífsnautnum – þeir drekka of fín vín, borga of mikið fyrir (vegan) steikina og fara of oft í bað.
Það eru 10 lög á plötunni, sem kom út árið 1975. Opnunarlagið er Hokus Pokus Man (Hoochie Cooche Man eftir Willie Dixon) og svo eru hápunktarnir sennilega Ropar På Min Snoppa (Howlin' for My Darlin' eftir Howlin Wolf) Allt Det Som Sårar Dej (It Hurts Me Too eftir Elmore James) og Liten Rö Tocke (Little Red Rooster eftir Willie Dixon). Í sem stystu máli sagt er þetta andskoti vel gert og ekki nærri eins mikið noveltí-ítem og ég hafði ímyndað mér. Í ... hvað kallar maður „liner notes“ á íslensku? Formála að plötu? Í formála sínum skrifar Sam Charters:En språkärring sa till morsan
innan jag sett dagens ljus
– Det e en grabb på väg
pigg på att leva bus.
Hans aptit på livet
blir större än nån kan förstå
Tills hela världen undrar
vad i helvete som står på.
Du vet, jag e här
alla vet att jag e här
Jag e en HOKUS POKUS MAN
alla vet att jag e här.
Blús á sænsku ... Blús er sannarlega ekki það fyrsta sem manni dettur í hug þegar maður hugsar um sænska tónlist. Nei, sennilega er Svíþjóð síðasti staður á jarðríki sem maður hugsar um þegar blúsinn er annars vegar.
Og það má til sanns vegar færa. Og kannski er þetta enn fremur bara blús á pepska – og slimska – vísu. Það erfiðasta við að spila blústónlist, hvort sem maður er frá Clarksdale eða Klippan, er að gæða hana persónuleika – því því verður einfaldlega ekki neitað að þessi tónlist er endurtekningasöm, stundum svo jaðrar við zeníska geðbilun, og þá eru það díteilarnir, sándið og einfaldlega persónuleikinn sem gerir músíkina. Það er erfitt að spila blús einmitt vegna þess að hann er einsleitur í grunninn. Margir blústónlistarmenn eru hálfgerðir períóðuleikarar – klæða sig upp í sokkabuxur og spila á lútu eftir kúnstarinnar reglum til þess að hljóma einsog eitthvað ídeal um blúsmanninn. Og geta kannski brugðið fyrir sig bæði Blind Blake og Mississippi John Hurt og hljómað eitthvað einsog báðir. En svo eru hinir sem gætu aldrei hljómað einsog neitt annað en þeir sjálfir. Muddy og Wolf léku báðir ótal lög eftir Willie Dixon og tilviljun réði því oft hver fékk hvaða lag en þeir hljómuðu aldrei einsog hinn – og heldur aldrei einsog Willie Dixon. Og þegar Peps leikur þessi lög hljómar hann bara einsog Peps.En þessi músík hefur fengið sænska umgjörð, sína eigin kryddblöndu og eigið vörumerki. Þetta er blús. En þetta er blús á sænsku.
Þrífarar vikunnar. Kristján, Peps og Tómas. Mér finnst ósennilegt að þetta verði fastur liður á blúsblogginu, en aldrei að segja aldrei. . |